<Hatari> page <Neysluvara> album page |
OdyrÁrin renna frá þér eins og brauðmylsnum er hent í ruslatunnuÞau safnast saman á haugum brostinna drauma Þú lítur til baka og hugsar Afhverju seldi ég mig Afhverju seldi ég mig Ekki fyrir meira? Næturnar verða ekki mikið fleiri eftir þetta Ævi þín er útbrunninn stubbur í hringiðandi öskubakka Þú lítur til baka og hugsar Afhverju seldi ég mig Afhverju seldi ég mig Öskunni er stráð yfir kistuna og um leið man enginn hver þú varst Ekkert fyrirfinnst jafn ómerkilegt og ævin sem var við að ljúka Þú stóðst ekki fastar á þínu en svo Að enginn kærir sig um minningu þína Við tekur hyldýpi svartnættis og eilíf eymd í botnlausri algleymsku Ég fel mig undir laki Sem kuldinn hefur þakið Nóttin starir þögul Hún segir lygasögur Tómið svífur að mér Berleggjaður berst ég Banasæng ég bý mér Banasæng ég bý mér Árin runnu frá þér eins og brauðmylsnum var stráð í ruslatunnu Þau söfnuðust saman á haugum brostinna drauma Hversu oft var það sem þú leist til baka og hugsaðir Afhverju seldi ég mig Afhverju seldi ég mig Ekki fyrir meira? |