<Hatari> page <Neysluvara> album page |
XX...X! Ljóðið er dautt listform og vitið uppurið Orðið er jarðsungið við stynjan hórkarla, mógúla og svikahrappa Það kostar milljarð að fá krabbamein og líftóruna að losna við það Þú horfðir á mig deyja... Þornaðir ávextir glataðra væntinga halda skrílnum í algleymingi Gjaldþrot hins andlega mergsýgur framtakið og kæfir það í biturleika Saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna Þú horfðir á mig deyja... Óþrjótandi gengisfallið ámáttkast í Óbilandi meðalmennsku meðalmannapans Lygarnar eru sem hnífur í blæðandi síðu aumingjans Hann krýpur á hnjánum. Holskeflan er gröf Saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna Dreyri vellur – hann fellur í valinn Þú horfðir á mig deyja... |